Origo - Breytingar á eigin hlutum félags

Origo hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Reykjavík, 3. júní 2019


Origo hf. (ORIGO) keypti í síðustu viku alls 435.000 eigin hluti fyrir kr. 11.339.000 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu Origo eftir viðskipti
27.5.201914:19145.000 26,1 3.784.500 5.948.604
28.5.201910:00145.000 26,1 3.784.500 6.093.604
29.5.2019 09:31 1 25,6 26 6.093.605
29.5.201910:14144.999 26,0 3.769.974 6.238.604
Samtals 435.000 11.339.000


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt var af stjórn félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar 14. mars sl.

Origo hefur nú keypt samtals 4.443.635 hluti, sem samsvarar 38,67% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 99.008775. Origo á nú samtals 1,36% af heildarhlutafé félagsins sem er 459.600.000 en fyrir átti félagið 5.803.604 hluti.

Samkvæmt endurkaupaáætlunni verða að hámarki keyptir 11.490.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2019. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.