Origo - Breytingar á eigin hlutum félags

Origo hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Reykjavík, 15. nóvember 2019


Origo hf. (ORIGO) keypti í vikunni alls 1.290.000 eigin hluti fyrir kr. 32.972.000 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Origo eftir viðskipti
11.11.201910:13325.00024,90 8.092.500 14.921.918
12.11.201910:46325.00024,90 8.092.500 15.246.918
14.11.201910:3770.00025,25 1.767.500 15.316.918
14.11.201915:27245.00026,35 6.455.750 15.561.918
15.11.201914:37325.00026,35 8.563.750 15.886.918
Samtals 1.290.000 32.972.000

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt var af stjórn félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar 31.október sl.

Origo hefur nú keypt samtals 2.534.100 hluti, sem samsvarar 22,05% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 63.544.915 Origo á nú samtals 3,46% af heildarhlutafé félagsins sem er 459.600.000 en fyrir átti félagið 13.173.818 hluti.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 11.490.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 10. febrúar 2020. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.