Skel fjárfestingafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

SKEL fjárfestingafélag hf.: Endurkaup vika 28


Í 28 viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. alls 500.000 eigin hluti fyrir 6.550.000 kr. eins og hér segir:

VikaDagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðHeildarfjöldi hluta keyptHeildar
Kaupverð
alls

Heildarmarkaðsverð keypt
2813.7.202311:29:46200.00013,12.620.000200.0002.620.0002.620.000
2814.7.202310:23:41100.00013,11.310.000300.0003.930.0003.930.000
2814.7.202311:12:14200.00013,12.620.000500.0006.550.0006.550.000


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti SKEL enga eigin hluti. SKEL hefur nú keypt samtals 500.000 eigin hluti fyrir 6.550.000 kr. sem samsvarar 0,025826 % af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 12. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 18.518.518 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,956% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 250 milljónum króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is