Sýn hf. : Auglýst eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Sýnar hf. auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum
til stjórnar Sýnar vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður föstudaginn
22. mars næstkomandi.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem tilnefningarnefnd
félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á vef félagsins á slóðinni
https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur.

Skal senda framboðstilkynningu á netfangið: tilnefningarnefnd@syn.is eigi síðar
en 11. febrúar nk.

[]


                 

Viðhengi: