Sýn hf. : Ráðning forstjóra - breytingar á stjórn

Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Sýnar hf., hefur ákveðið að segja sig úr
stjórn félagsins. Hjörleifur Pálsson hefur tekið við stjórnarformennsku og
Sigríður Vala Halldórsdóttir varastjórnarmaður tekið sæti í stjórn. Samhliða
þessum breytingum hefur verið gengið frá ráðningu Heiðars Guðjónssonar sem
forstjóra Sýnar hf.

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður Sýnar: "Heiðar hefur stýrt stjórnarstörfum
undanfarin ár af röggsemi. Það er mikill fengur af því að fá hann til þess að
leiða daglegan rekstur félagsins, enda hefur hann yfirgripsmikla þekkingu á
starfseminni. Við bjóðum hann því velkominn til starfa á nýjum vettvangi."

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar: "Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er
sýnt með þessari ráðningu. Framundan eru krefjandi verkefni, sem ég hlakka til
að leysa af hendi í samstarfi við allt það framúrskarandi fólk sem starfar hjá
Sýn hf."




[]