Sýn hf.: Rekstrarhagnaður fjórðungsins sá besti það sem af er ári

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir níu mánuði ársins 2019 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 6. nóvember 2019 

Í ársbyrjun var meðferð á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt, samanburðartölur 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun.

Helstu niðurstöður:

• Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2019 námu 4.878 m.kr. sem er 5,2% lækkun frá sama tímabili 2018. Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins lækkuðu um 454 m.kr. milli ára, eða um 3%.

• EBITDA nam 1.623 m.kr. á ársfjórðungnum í samanburði við 1.785 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 33,3% á 3F 2019 samanborið við 34,7% á 3F 2018. EBITDA á fyrstu 9 mánuðum ársins 2019 nam 4.100 m.kr og lækkaði um 153 m.kr miðað við sama tímabil 2018. EBITDA hlutfall á 3F 2019 leiðrétt fyrir breytingum á IFRS 16 nam 30%.

• Tap á þriðja ársfjórðungi 2019 nam 71 m.kr. samanborið við 207 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Tapið á fjórðungnum skýrist að mestu vegna einskiptiskostnaðar að fjárhæð 150 m.kr. sem samanstendur af uppgjöri á vaxtaskiptasamningi félagsins og starfslokagreiðslum. Hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 384 m.kr. sem er 135 m.kr. hækkun frá sama tímabili 2018. Einskiptiskostnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur 358 m.kr.

• Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.235 m.kr. samanborið við 1.185 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 4,22%.

• Heildarfjárfestingar félagsins á tímabilinu námu 1.119 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 303 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 806 m.kr.

• Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar á tímabilinu um 367 m.kr á móti 45 m.kr á sama tímabili á fyrra ári sem er aukning um 322 m.kr.

• Horfur vegna ársins 2019 haldast óbreyttar.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Uppgjörið er vitnisburður um að við höfum náð tökum á rekstrinum. Nýtt spáferli sem unnið er eftir gefur okkur mun betri mynd af undirliggjandi þáttum og við teljum að það muni leiða til frekari bata í rekstri á næstu fjórðungum. Sjóðstreymi 3. ársfjórðungs batnar á milli ára og reksturinn batnar umtalsvert frá öðrum ársfjórðungi. Aðgerðir sem gripið var til í sumar, með endursamningum við birgja og fækkun stöðugilda mun koma fram í rekstri við lok ársins og að fullu á nýju ári.

Stjórn fyrirtækisins samþykkti kaup á Endor sem verður dótturfélag fyrirtækisins. Við sjáum fjöldamörg tækifæri til samþættingar og aukinnar tekjuöflunar við kaupin. Kaupverðið fer eftir afkomu fyrirtækisins en er á bilinu 1,5 - 5 sinnum EBITDA, eftir því hvernig málum fram vindur.

Celtic Norse er nýtt verkefni um lagningu sæstrengs sem við kynntum í London ásamt samstarfsaðilum í síðustu viku. Það sem hefur hamlað uppbyggingu gagnavera á Íslandi er hár kostnaður sæstrengja sem hingað liggja. Þetta verkefni getur lagað þá stöðu umtalsvert.

Uppbyggingu Reykjavik Data Center á Korputorgi miðar samkvæmt áætlun og sala inn í verið hefur gengið framar vonum.“

Kynningarfundur 7. nóvember 2019:

Frekari upplýsingar:

Valdís Guðlaugsdóttir forstöðumaður samskiptasviðs Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is  eða í síma 669-9319.



Viðhengi: