Stjórn Sýnar hf. ákvað að taka tilboðum fyrir kr. 20.750.000 að nafnverði á genginu 67,00 í endurkaupum sem tilkynnt var um föstudaginn 7. janúar 2022.
Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 12 janúar.
Endurkaupin eru framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021.
Sýn hf. á 20.750.000 hluti, eða sem nemur um 7% af útgefnu hlutafé félagsins í lok endurkaupa samkvæmt tilboðs fyrirkomulaginu. Nánari upplýsingar um framkvæmd reglulegra endurkaupa, sem nú taka við, verða veittar síðar í vikunni.
Fjárfestadagur (e. capital markets day) sem átti að halda fimmtudaginn 13. janúar frestast um viku vegna veikinda framsögumanna og verður haldinn 20. janúar.
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar hf., heidarg@syn.is
