Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 8 keypti Sýn 876.224 eigin hluti að kaupverði 56.571.212 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
21.2.2022 09:39:36 219.056 67,00 14.676.752
22.2.2022 10:10:33 219.056 65,25 14.293.404
23.2.2022 09:42:53 219.056 64,50 14.129.112
25.2.2022 13:04:51 219.056 61,50 13.471.944
Samtals   876.224   56.571.212
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 12. janúar 2022.

Sýn átti 26.312.064 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 27.188.288 eigin hluti eða sem nemur 9,17% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 6.438.288 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,17% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 416.214.724 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.500.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 9,9% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 600.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 3. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita:

fjárfestatengsl Sýnar í gegnum net­fangið fjarfestatengsl@syn.is