Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út
skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
-- Hagnaður af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 18 þúsundum
króna samkvæmt rekstrarreikningi.
-- Hrein eign sjóðsins nam 723 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
-- Árshlutareikningurinn var kannaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við
alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Í áritun endurskoðenda vegna könnunar kemur
fram að ekkert bendi til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga
mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2016 og
breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og
settar reikningsskilareglur.
Nánari upplýsingar um árshlutareikning Fagfjárfestasjóðsins ORK veitir
starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.