Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út
skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
-- Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 35 þúsundum króna samkvæmt
rekstrarreikningi á árinu 2016.
-- Hrein eign sjóðsins nam 741 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
-- Árshlutareikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi
við alþjóðlega endurskoðunarstaðla.
Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu
sjóðsins á árinu 2016, efnahag hans 31. desember 2016 og breytingu á
hreinni eign á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um
reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að
geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum,
sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga
.
Nánari upplýsingar um ársreikning Fagfjárfestasjóðsins ORK veitir starfsfólk
Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.