Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP ehf. tilkynnti um kaup á 318.000 hlutum í Alvotech þann 31. mars 2026 af Róberti Wessman, stjórnarformanni Alvotech og stjórnarformanni og aðaleiganda Aztiq. ATP ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfa innan sömu samstæðu (e. intra-group transaction). Verð bréfanna í viðskiptunum var 3,29 bandaríkjadalir á hlut.
