Kaldalón hf.: Kynningarfundur fyrir ársuppgjör 2024

Kaldalón hf. mun birta samþykktan samstæðuársreikning 2024 eftir lokun markaða föstudaginn 7. mars 2025.

Fjárfestakynning vegna uppgjörsins verður haldin samdægurs kl. 16:00 á Grand Hótel, Sigtúni 28. 

Á fundinum munu stjórnendur fara yfir starfsemina á árinu, ársuppgjör og framtíðarhorfur. Við upphaf fundar verður kynningarefnið jafnframt aðgengilegt á vefsíðu Kaldalóns.

Nánari upplýsingar veitir Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
jon.gunnarsson@kaldalon.is