Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 48 árið 2025 keypti Kaldalón hf. 625.520 eigin hluti að kaupvirði kr. 15.688.208 skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiMagnVerðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
24.11.202510:30:12242.00525,006.050.12519.376.592
24.11.202510:30:1980025,0020.00019.377.392
24.11.202510:33:277.19525,00179.87519.384.587
25.11.202509:37:06226.69425,005.667.35019.611.281
25.11.202509:41:2323.30625,00582.65019.634.587
27.11.202513:13:39121.64125,403.089.68119.756.228
27.11.202514:48:351.93925,4049.25119.758.167
27.11.202515:20:521.94025,4049.27619.760.107
  625.520 15.688.208 

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. október 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 9.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 250.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 29. október 2025 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2025.

Kaldalón hf. átti 19.134.587 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 19.760.107 eða sem nemur 1,82% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaldalón hefur keypt samtals 5.570.186 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,51% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 144.390.591.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
jon.gunnarsson@kaldalon.is