Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 15 árið 2026 keypti Kaldalón hf. 843.204 eigin hluti að kaupvirði kr. 21.080.100 skv. sundurliðun hér á eftir:



DagsetningTímiMagnVerðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
7.4.202609:39:36 300.000 25,0 7.500.000 25.271.818    
8.4.202610:37:34 104.284 25,0 2.607.100 25.376.102    
8.4.202610:37:57 45.716 25,0 1.142.900 25.421.818    
9.4.202609:35:11 233.099 25,0 5.827.475 25.654.917    
9.4.202611:00:18 16.901 25,0 422.525 25.671.818    
10.4.202609:37:25 133.099 25,0 3.327.475 25.804.917    
10.4.202611:22:53 2.526 25,0 63.150 25.807.443    
10.4.202612:59:34 2.526 25,0 63.150 25.809.969    
10.4.202614:43:56 2.526 25,0 63.150 25.812.495    
10.4.202615:19:14 2.527 25,0 63.175 25.815.022    
 Samtals 843.204 21.080.100 



Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 27. mars 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 10.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 250.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst þriðjudaginn 31. mars og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 30. júní 2026.

Kaldalón hf. átti 24.971.818 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 25.815.022 eða sem nemur 2,38% af útgefnum hlutum í félaginu.

Þá vísast til tilkynningar dags. 27. mars 2026 um niðurfellingu 24.291.818 eigin hluta í kjölfar samþykktar aðalfundar félagsins þann 26. mars 2026. Sú lækkun er í framkvæmd.

Kaldalón hefur keypt samtals 1.523.204 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 38.080.100.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir,

Högni Hjálmtýr Kristjánsson, framkvæmdastjóri rekstrar

hogni.kristjansson@kaldalon.is