Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 19 árið 2026 keypti Kaldalón hf. 5.000 eigin hluti að kaupvirði kr. 135.000 skv. sundurliðun hér á eftir:



DagsetningTímiMagnVerðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
6.5.202613:15:14 5.000 27,0 135.000     1.528.204   



Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 27. mars 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 10.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 250.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst þriðjudaginn 31. mars og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 30. júní 2026.

Kaldalón hf. átti 1.523.204 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 1.528.204 eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaldalón hefur keypt samtals 1.528.204 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 38.215.100.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir,

Högni Hjálmtýr Kristjánsson, framkvæmdastjóri rekstrar

hogni.kristjansson@kaldalon.is