Kaldalón hf.: Birting lýsingar

Kaldalón hf. hefur birt lýsingu vegna fyrirhugaðrar töku viðbótarútgáfu hlutafjár til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Kaldalón hf. hefur birt lýsingu vegna fyrirhugaðrar töku viðbótarútgáfu hlutafjár til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Lýsingin, sem er dagsett 26. maí 2026, hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Lýsingin er á íslensku og hefur verið birt á vefsvæði Kaldalóns: www.kaldalon.is/fjarfestar.

Útgáfa lýsingar er tengd fyrirhugaðri viðbótarútgáfu tengdu uppgjöri á kaupum Kaldalóns á fasteignum FÍ fasteignafélags slhf. sem áður hefur verið tilkynnt um, nú síðast 8. maí sl.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur umsjón með töku viðbótar útgáfu hlutabréfa Kaldalóns til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.