Kaldalón hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum KALD 120531

Kaldalón hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum KALD 120531 með sölu á skuldabréfum fyrir 2.000 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 4,48%. Heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunar verður því að nafnverði 5.000 m.kr.

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður, með 25 ára endurgreiðsluferli á föstum 4,00% ársvöxtum og jöfnum greiðslum á 6 mánaða fresti. Skuldabréfin eru gefin út í 20.000.000 kr. nafnverðseiningum. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi og er gefinn út undir 40.000 m.kr. útgáfuramma félagsins. 

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn, 12. júní 2026. Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnun skulda félagsins. 

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; kaldalon.is/fjarfestar.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf.

s. +354 856 7155

sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is