Nýr fjármálastjóri Hampiðjunnar

Hampiðjan hefur ráðið Emil Viðar Eyþórsson sem fjármálastjóra Hampiðjunnar.  
Emil er 35 ára og menntaður sem viðskiptafræðingur frá HÍ með áherslu á
reikningshald og endurskoðun og hefur verið löggiltur endurskoðandi frá 2011. 

Emil hefur starfað hjá Deloitte í tæp 14 ár, fyrst við endurskoðun og uppgjör
en síðar hjá fjármálaráðgjöf Deloitte. Emil varð meðeigandi hjá Deloitte á
árinu 2013 og tók við sem yfirmaður fjármálaráðgjafar Deloitte á árinu 2015. 

Emil er kvæntur Guðlaugu Eddu Steingrímsdóttur og eiga þau þrjú börn.