Klappir Grænar Lausnir hf.: Aðalfundur

Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf.

Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf. verður haldinn í ráðstefnusalnum Kötlu 2,
Hótel
Sögu, fimmtudaginn 12. apríl 2018, og hefst hann kl. 16:00.


Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1 Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2 Önnur mál sem eru löglega borin fram.


Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar um breytingu á grein 2.01.5
samþykkta
félagsins um endurnýjun á heimild til stjórnar um að auka hlutafé félagsins um
allt að 15.
m.kr. með útgáfu nýrra hluta í B-flokki hlutabréfa.


Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu
endurskoðenda,
munu verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins, Austurstræti 17, 5. hæð,
tveimur
vikum fyrir aðalfund.


Öll gögn verða lögð fram fyrir hluthafa á síðunni www.klappir.is/fjarfestar.


Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað frá kl. 15.45. Á
hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í A-flokki hlutabréfa. B-
hlutabréf
hafa ekki atkvæðarétt.


Stjórn Klappa Grænna Lausna hf.


[]