SS kaupir Hollt og Gott ehf.

Sláturfélag Suðurlands hefur fest kaup á öllu hlutafé framleiðslufyrirtækisins
Hollt og Gott ehf. af meðeiganda sínum Auðhumlu svf. Fyrir kaupin átti SS 50% í
Hollu og Góðu. Kaupverðið er trúnaðarmál. 

Hollt og Gott sérhæfir sig í framleiðslu á fersku salati, brauðsalati, sósum og
ýmsum vörum úr grænmeti og ávöxtum. Fyrirtækið var stofnað í júní 1995 af Ágæti
og SS og er til húsa að Fosshálsi 1, Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Máni
Ásgeirsson. 

Kaupin eru liður í áherslu SS að styrkja sig á framleiðslusviði matvæla. Hjá
Hollt og Gott starfa 34 starfsmenn. 
Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is